3. júlí 2007

Whatever Nálgast

Nú styttist óðum í þetta, helgin nálgast hratt og æfingar ganga ennþá hraðar…

Gerðum okkur lítið fyrir og tókum 30 lög í gær, á sveittustu æfingu sem fyrir finnst.. það var svo sveitt þarna inni að bassamagnarinn hans Ragga ákvað að fremja sjálfsmorð…. Þannig á miðri æfingu kom MASSÍV brunalykt og eftir smá athugun komust allir 6 verkfræðingarnir í herberginu að þeirri niðurstöðu að “He be föökkt”. En við létum okkur ekkert hafa það, hringdum nokkur símtöl, svo kom aðdáandi #1 og dyggasti styrktaraðili hann Biggi Nintendo okkur til bjargar og kom með 4 keila stæðu sem húkkuð var við formagnarann í “Da föökt amp” og skítmixað aðeins og Baddabímmbaddabúmm Raggi kominn í gang….

Sem örlítill þakkarvottur spiluðum við Intro-ið okkar fyrir hann Bigga, en það er sérgert bara fyrir hann… Takk Biggi, Youdaman! (má lesa Yoda-man)

Þið hin, verðið bara að mæta hress og kát í Hallgeirsey til þess að fá að heyra introið.. Sjáumst næstu helgi

–:–WhatEver–:–

Ummæli (3) | Óflokkað

25. júní 2007

Allt að gerast

Núna er allt komið á syngjandi siglingu… Eftir að 3 meðlimir bandsins voru í partýi á laugardaginn með Pétri Ben, kom smá vítamín sprauta í rassinn og mikilmennskubrjálæði sem er bara notað til hvatingar!

 Við semsagt vorum á hörku samtali við Pétur um tónlist (ásamt öðrum), við það styrktist það álit mitt að það er ógeðslega töff að vera tónlistarmaður… Og það sem meira er, bandið okkar er ógeðslega töff…

Neinei, við vorum alltaf ógeðslega töff, og þetta party breytti engu  um það! Ef þú ert ekki ennþá sannfærð/ur um ágæti tónlistarhæfileika okkar, þá mætirðu bara á Hallgeirinn og svo máttu biðjast afsökunnar á sunnudags morgun…

 -_-Trommarinn-_-

Ummæli (2) | Óflokkað

22. júní 2007

Whatever

Whatever er í bullandi æfingum fyrir útihátíð Verkfræðinnar, Hallgeirsey. Þar verðum við að trylla líðinn á laugardagsnótt alveg langt fram á sunnudags morgun…

 Hér geturðu fylgst með því hvernig æfingum gegnur, brot af lagalista og kanski komið með óskalög.. hver veit..

Ummæli (1) | Óflokkað